Kaffihlaðborð um Verslunarmannahelgina

Hamarsbúð
Hamarsbúð
Í áraraðir hafa Húsfreyjurnar boðið upp á veislur í Hamarsbúð og nú er engin undantekning á því. Ágóðinn hefur ávallt runnið til góðgerðamála í héraðinu og svo mun einnig vera núna.

Kaffihlaðborð með rjómapönnukökum, smurbrauði og öðru fjölbreyttu meðlæti að hætti Húsfreyjanna verður í Hamarsbúð á Vatnsnesi laugardaginn 30. júlí og sunnudaginn 31. júlí n.k. á milli kl. 14:00 og 18:00 báða dagana.
Verð kr. 2000 en kr. 1000 fyrir 6 - 12 ára.
Dóra Sigurðardóttir sýnir málverk.

Verið velkomin í Hamarsbúð, Húsfreyjur.

Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir