Krækjur unnu sig upp í aðra deild

Glaðar Krækjur á leið upp í 2. deild. Mynd af Facebook.
Glaðar Krækjur á leið upp í 2. deild. Mynd af Facebook.
Birnur A. Mynd af Facebook.

 Síðasta keppnishelgi Íslandsmótsins í Blaki fór fram um síðustu helgi. Krækjur frá Sauðárkróki spiluðu sína síðustu fimm leiki í 3. deild á Neskaupstað og náðu að knýja fram fjóra sigra en einn leikur tapaðist. Birnur Bombur frá Hvammstanga léku á Ísafirði og Birnur A í Kópavogi.

Með sínum frábæra árangri enduðu Krækjurnar í 2. sæti sem gefur þeim keppnisrétt í 2. deild á næsta ári en þær komu sér upp úr 5. deildinni árið 2016. Þá voru þær færðar upp í 3. deild þar sem verið var að fjölga liðum og fækka deildunum.

Birnur Bombur. Mynd af Facebook.

 

 

 

Birnur Bombur kepptu í 5. deild og fór þeirra törnering fram á Ísafirði. Höfnuðu þær í 4.sæti, unnu tvo leiki 2-0. Birnur A kepptu í 4. deild og áttu þær stórgóða leiki um helgina. Unnu þær fjóra leiki af fimm; tvo leiki 2-0 og tvo 2-1 og höfnuðu í 2. sæti í B hóp eða í 8. sæti í deildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir