Laxveiðitímabilinu að ljúka

Mynd: angling.is
Mynd: angling.is

Laxveiði í Blöndu er lokið þetta sumarið en alls veiddust 2386 laxar á 14 stangir. Það mun vera ríflega helmingi minni veiði en í fyrr sem þá var metár, samkvæmt Húna.is. Miðfjarðará fór yfir 4000 laxa markið í vikunni en alls hafa veiðst 4195 laxar í ánni sem af er sumri og á enn eftir að bætast við. Síðasta vika gaf 247 laxa á tíu stangir. Víðidalsá fór yfir 1000 laxa markið og er komin í 1053 laxa.

Húni.is segir að vikuveiðin í Víðidalsá hafi verið 63 laxar á átta stangir. Veiðst hafa 822 laxar í Vatnsdalsá og hefur áin skilað 64 löxum síðustu sjö daga á sex stangir. Hrútafjarðará er komin í 480 laxa og Svartá í 362 laxa, samkvæmt tölum Landssambands veiðifélaga yfir aflahæstu laxveiðiárnar veiðisumarið 2016.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir