Ljósadagur í dag
feykir.is
Skagafjörður
12.01.2018
kl. 11.59
Hefð er að skapast í Skagafirði um að halda ljósadag 12. janúar ár hvert og minnast látinna ástvina með því að tendra ljós í skammdeginu. Þetta mun vera í fjórða skiptið sem íbúar eru hvattir til að hafa kertaljós við heimili sín, gangstéttir og eða götur er skyggja tekur í kvöld.
Hugmyndin að þessum árlega Ljósadegi kviknað eftir að Anna Jóna Sigurbjörnsdóttir og Skarphéðinn Andri Kristjánsson létust í kjölfar umferðarslyss sem varð þann 12. janúar 2014.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.