Markmenn eiga misjafna daga

Heimsbyggðin fylgdist agndofa með þegar Hannes Þór Halldórsson varði víti frá sjálfum Lionel Messi og átti stórgóðan leik með íslenska landsliðinu gegn Argentínu. Það var unun að horfa á tilþrifin hjá honum í leiknum og vonandi heldur hann áfram að standa sig vel á stóra sviðinu. En markmenn geta átt ansi slæma daga og það er líka skemmtilegt að sjá smá klúður.

Hér fyrir neðan má sjá skondna samantekt af ótrúlegum mistökum sem markmenn hafa afrekað víðsvegar í fótboltaheiminum og fá mann til að brosa út í annað ef ekki bæði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir