Menningarbúskapur í fjárhúsunum á Kleifum við Blönduós

Finnur Arnar í fjárhúsahlöðunni að Kleifum. Mynd: Vísir.is.
Finnur Arnar í fjárhúsahlöðunni að Kleifum. Mynd: Vísir.is.

Á morgun, laugardaginn 22. júlí kl. 14:00, verður opnuð sýning sem samanstendur af fjórum vídeóverkum í gömlum fjárhúsum á bænum Kleifum, rétt við Blönduós. Það er myndlistarmaðurinn Finnur Arnar Arnarson sem unnið hefur að undirbúningi og uppsetningu sýningarinnar, ásamt konu sinni, Áslaugu Thorlacius.

Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru Olga Bergmann og Anna Hallin sem eiga saman eitt verk, Dodda Maggý, Ragnar Kjartansson og Egill Sæbjörnsson. Um er að ræða fjögur vídeóverk sem sýnd eru hvert í sinni kró fjárhúsanna. „Nú er því verið að rækta hugann í útihúsunum og auðvitað er lambakjötið alltaf fínt en þetta sýnir okkur að það er hægt að rækta fleira en kjöt í íslenskri sveit. Það sorglega er þó að hér eru engar rollur lengur eftir að hér kom upp riða fyrir mörgum árum með þeim afleiðingum að allt var fellt. Þannig að nú er bara menningarbúskapur fram undan,“ segir Finnur í samtali við Fréttablaðið í gær.

Finnur segir að hann og kona hans, Áslaug, hafi staðið saman að undirbúningi sýningarinnar en það er móðir hennar, Ásdís Kristinsdóttir, sem á Kleifar. Finnur útilokar ekki að það verði framhald á þessu næsta sumar í einhverju formi lista, þó ekkert endilega myndlistar. „En það verður að segjast eins og er að það er ekkert mikið framboð af menningarviðburðum á þessu svæði. Þannig að okkur langaði til þess að gera það sem við kunnum og við höfum þessi sambönd innan myndlistarinnar og ákváðum að nýta okkur það. Við fórum í að fá listamennina til þess að koma og vera með og það er svo merkilegt að það segja bara alltaf allir já. Þetta fólk sem er að fara að sýna hikar ekki eitt andartak. Hingað koma listamenn beint frá Feneyjum í fjárhúsin og það þykir bara sjálfsagt mál,“ segir Finnur.

Eins og áður segir verður sýningin opnuð á morgun kl. 14:00 og eru allir velkomnir. Frá og með sunnudeginum verður opið frá klukkan tíu á morgnana til klukkan tíu á kvöldin í rúma viku og er aðgangur ókeypis.

Viðtalið við Finn birtist í Fréttablaðinu í gær og má nálgast það í heild sinni hér

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir