NORÐLENSKAR KONUR Í TÓNLIST -í sparifötunum!

Frá vinstri: Ave Sillaots, Lára Sóley Jóhannsdóttir, Ásdís Arnardóttir, Helga Kvam, Ella Vala Ármannsdóttir, Kristjana Arngrímsdóttir og Þórhildur Örvarsdóttir. Mynd: Daníel Starrason.
Frá vinstri: Ave Sillaots, Lára Sóley Jóhannsdóttir, Ásdís Arnardóttir, Helga Kvam, Ella Vala Ármannsdóttir, Kristjana Arngrímsdóttir og Þórhildur Örvarsdóttir. Mynd: Daníel Starrason.

Tónleikaröð norðlenskra kvenna í tónlist sem tileinkuð var lofti, sjó og landi sló heldur betur í gegn síðastliðið haust. Tónlistarkonurnar fylltu hvert húsið á fætur öðru og hlutu mikið lof fyrir skemmtilega og einlæga nálgun á lögum tengdum sjómennsku, sveitarómantík og hernámsárunum.
Laugardaginn 25. febrúar kl. 20.00 munu tónlistarkonurnar stíga á svið í Hamraborg í Menningarhúsinu Hofi og flytja brot af því besta úr tónleikaröðinni. Sjómannavalsinn, Sveitaball og Það er draumur að vera með dáta eru meðal þeirra laga sem munu hljóma.
Norðlenskar konur í tónlist er hópur kvenna sem starfað hefur saman frá árinu 2015 og eru konurnar félagskonur KÍTÓN. Hópinn skipa Ave Sillaots sem leikur á harmonikku, Ásdís Arnardóttir sellóleikari og fyrir tilstuðlan hópsins nú einnig kontrabassaleikari, Ella Vala Ármannsdóttir horn, kornett og slagverksleikari, Helga Kvam sem leikur á píanó og söngkonurnar Kristjana Arngrímsdóttir, Þórhildur Örvarsdóttir og Lára Sóley Jóhannsdóttir, sem einnig leikur á fiðlu.
Norðlenskar konur í tónlist lofa ógleymanlegu kvöldi, fullu af hugljúfheitum og skemmtun. Miðasalan er í fullum gangi á www.mak.is.
Allar nánari upplýsingar veitir Lára Sóley Jóhannsdóttir á netfangið nordlenskarkonuritonlist@gmail.com eða í síma 8670749.
/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir