Ólíðandi öryggisleysi

Mynd: Mýflug
Mynd: Mýflug

Byggðarráð sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir þungum áhyggjum af stöðu sjúkraflugs og skorar á ný stjórnvöld að bregðast við hið fyrsta og tryggja íbúum landsbyggðarinnar örugga aðkomu að eina hátæknisjúkrahúsi landsins með opnun neyðarbrautarinnar í Vatnsmýrinni.

Á fundi byggðarráðs í síðustu viku var rætt um sjúkraflug frá Sauðárkróki og kom þar fram að með öllu væri ólíðandi að íbúar hinna dreifðu byggða þurfi að sæta slíku öryggisleysi eins og nýleg dæmi sanna þar sem ekki var hægt að koma fárveikum einstaklingum til Reykjavíkur þar sem sjúkraflugvél Mýflugs gat ekki lent í Reykjavík.

„Ljóst er að með nauðsynlegri uppbyggingu hátæknisjúkrahúss í Reykjavík hlýtur það að vera einboðið að sjúkraflugið lendi í sem mestri nálægð við sjúkrahúsið,“ segir í bókun ráðsins sem hvetur ríkisvaldið og borgaryfirvöld í höfuðborg okkar Íslendinga að ganga þannig frá málinu að sjúkraflug til Reykjavíkur verð tryggt með opnun neyðarbrautarinnar.

Byggðarráð fól sveitarstjóra að óska eftir fundi með forsvarsmönnum Ísavia til að fara yfir nauðsynlegan búnað og umgjörð sem þarf að vera til staðar á Alexandersflugvelli á Sauðárkróki, til þess að tryggja öruggt sjúkraflug til og frá vellinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir