Óöryggi og hræðsla greip um sig í borginni
Hryðjuverkaárásirnar í París á föstudaginn fyrir rúmri viku hafa ekki farið framhjá neinum sem fylgst hafa með fréttum. Hjón búsett á Sauðárkróki, Margréti Björk Arnardóttur náms- og starfsráðgjafi og Ragnar Þór Einarsson múrari, voru stödd í París þessa helgi að heimsækja ættingja. Margrét deildi upplifun þeirra með blaðamanni Feykis.
„Á meðan við biðum voru allir á netinu að reyna að afla sér upplýsinga um ástandið, hvar hryðjuverkin ættu sér stað og hvort einhver möguleiki væri á að við værum í hættu. Þegar líða tók að miðnætti virtist lögreglan vera búin að ná tökum á ástandinu og þá hringdum við á leigubíl til að athuga hvort þeir væru eitthvað á ferðinni þar sem öllum lestarsamgöngum hafði verið lokað. Við vorum svo heppin að fá leigubíl og komust heim á hótel þar sem lítið var sofið sökum sírenuvæls og óneitanlegs ótta við hvað nóttin bæri í skauti sér.“
Nánar um þetta í 44. tölublaði Feykis sem kom út sl. fimmtudag.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.