Opið hús í listamiðstöðinni Nesi í dag

Listamiðstöðin Nes á Skagaströnd verður með opið hús í dag, föstudag 23. febrúar. Þar munu þeir átta listamenn sem hafa dvalið í miðstöðinni þennan mánuðinn sýna verk sín sem eru af ýmsum toga, s.s. málverk, útsaumur, teikningar og ljósmyndir.

Listamenninrnir átta sem sýna verk sín eru:

Grace O´Malley, Írlandi
Katie Detemple, Bandaríkjunum
Sarah Coppelov, Bretlandi
Sarah Jones, Bretlandi
Angeles Peña, Argentínu
Avantika Bawa, Bandaríkjunum/Indlandi
Camille Lescarbeau, Kanada
Consuelo Cavaniglia, Ástralíu

Opið verður í listamiðstöðinni Nesi milli klukkan 16 og 18 í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir