„Plássið" á Borðeyri verði verndarsvæði í byggð

„Plássið
„Plássið" á Borðeyri. Mynd:FE

Á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra þann 8. mars sl. var lögð fram og samþykkt bókun þess efnis að sá hluti Borðeyrar við Hrútafjörð sem stendur á svokölluðum Borðeyrartanga og gekk lengi undir viðurnefninu „Plássið" verði gerður að verndarsvæði í byggð samkvæmt lögum um verndarsvæði. Lög þessi skilgreina verndarsvæði í byggð sem afmarkaða „byggð með varðveislugildi sem nýtur verndar samkvæmt ákvörðun ráðherra á grundvelli laga þessara“. 

Í bókun sveitarstjórnar segir: „Með þessu vill Húnaþing vestra staðfesta menningarsögulegt gildi verslunarstaðarins á Borðeyri. Markmið þess að gera hluta Borðeyrar að sérstöku verndarsvæði er að viðhalda og styrkja byggð á Borðeyri með þeim hætti að söguleg arfleifð kaupstaðarins fái notið sín og gildi hennar undirstrikað gagnvart heimamönnum jafnt sem aðkomufólki en þó ekki síst gagnvart komandi kynslóðum."

Var byggingafulltrúa falið að auglýsa tillögu um verndarsvæði í byggð í samræmi við reglugerð þar að lútandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir