Riðuveiki staðfest í Skagafirði

Riðuveiki hefur fundist í kindum í Brautarholti í Skagafirði. Mynd: PF
Riðuveiki hefur fundist í kindum í Brautarholti í Skagafirði. Mynd: PF

Riðuveiki hefur verið staðfest á búi á Skagafirði. Þetta er fjórða tilfelli hefðbundinnar riðu sem greinist á Norðurlandi vestra síðan í febrúar 2015. Þá hafði ekki greinst riða á landinu síðan árið 2010. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða.

Í síðustu viku fékk bóndinn í Brautarholti í Skagafirði grun um riðuveiki í kind og hafði samband við héraðsdýralækni. Kindinni var lógað og sýni sent til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands á Keldum, sem staðfesti á miðvikudag í þessari viku að um hefðbundna riðuveiki væri að ræða. Búið er í Skagahólfi en þar hefur riðuveiki komið upp á ellefu búum á undanförnum 20 árum og þar af á fjórum búum í nágrenni Varmahlíðar, þannig að segja má að um þekkt riðusvæði sé að ræða. Á þessu búi var síðast skorið niður vegna riðu árið 1987. Á bænum er nú um 290 fullorðið fé.

Fram til ársins 2010 greindist riða á nokkrum bæjum á landinu á hverju ári en engin tilfelli hefðbundinnar riðu greindust á árunum 2011, 2012 og 2013. Riðuveikin er því á undanhaldi en ekki má sofna á verðinum. Á undanförnum árum hafa sýni verið tekin við slátrun úr u.þ.b. þrjúþúsund kindum á ári. Jafnframt hafa bændur verið hvattir til að senda hausa til Keldna af fé sem drepst eða er lógað heima vegna vanþrifa, slysa eða sjúkdóma, eða hafa samband við dýralækni um að taka sýni úr slíku fé. Aukin áhersla er á að fá slík sýni þar sem það eykur líkur á að finna riðuna, segir í tilkynningu frá MAST.

„Nú er verið að afla faraldsfræðilegra upplýsinga. Á grundvelli þeirra er m.a. hægt að sjá hvaða bú eru í mestri hættu á að hafa smitast eða að smitið hafi komið frá. Þau bú verða skoðuð og sýni tekin úr fénu við slátrun. Jafnframt er hafinn undirbúningur að framkvæmd þeirra verka sem framundan eru, þ.e.a.s. niðurskurði á fénu, förgun á hræjum, hreinsun húsa o.s.frv.,“ segir Auður L. Arnþórsdóttir sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun við Feyki. Hún segir mikilvægt að allir bændur fylgist vel með hvort þeir verði varir við einhver einkenni í sínu fé og hafi strax samband við dýralækni ef grunur vaknar. Jafnframt sé mikilvægt að bændur sendi hausa til Keldna af fé sem drepst eða er lógað heima vegna vanþrifa, slysa eða sjúkdóma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir