Síðasta sýning á Jónatan í kvöld

Leikritið Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan, sem Leikfélag Sauðárkróks hefur verið að sýna undanfarnar vikur, hefur sannarlega slegið í gegn. Uppselt hefur verið á flestar sýningar en nú er komið að lokasýningunni.

Það eru því síðustu forvöð að sjá þrettándu og síðustu sýningu sem fram fer í Bifröst í kvöld kl. 20 en eftir því sem Feykir kemst næst eru nokkrir miðar enn á lausu.

Miðapantanir í síma 849-9434.

Tengd frétt: Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan - Myndband

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir