Síminn eflir 4G í Skagafirði

Myndin sýnir staðsetningu nýju 4G sendanna. Mynd: Síminn.
Myndin sýnir staðsetningu nýju 4G sendanna. Mynd: Síminn.

Síminn hefur stækkað 4G kerfi sitt í Skagafirði með gangsetningu fimm nýrra 4G háhraðasenda. Staðir sem nú bætast við eru Haganesvík, Hofsós, Hegranes, Varmahlíð og Steinstaðir. Áður náði 4G Þjónusta Símans til Sauðárkróks og Hóla.

„Samhliða þessari stækkun voru settir upp öflugri 3G sendar á Hofsósi, Varmahlíð og á Steinsstöðum. Þeir sem nota farsímanetið eiga að finna mikinn mun á hraða þjónustunnar, sérstaklega þeir sem nota snjalltæki sem styðja 4G tæknina. En við sjáum að á landsvísu fara nú meiri gögn um 4G kerfið en 3G kerfið,“ segir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans.

Hún segir að farsímakerfi Símans hafi vaxið ört síðustu misseri og reiknar Síminn með að fjölga 4G sendum um 40% milli ára. Sendarnir fimm í Skagafirði eru meðal ríflega 20 nýrra 4G senda sem hafa verið settir upp það sem af er ári og víða á landsbyggðinni. Að sögn Gunnhildar er það óvanalegt á þessum árstíma en 4G sendar eru nú til að mynda við Sólheima, Grundartanga, Skaftafell og Jökulsárlón.

„Við sjáum um 100% vöxt í gagnanotkun enn og aftur milli ára og risastökk þessa fyrstu mánuði frá sama tíma í fyrra. Það er krefjandi verkefni fyrir okkur að halda gæðunum í kerfinu miðað við þessa aukningu ár eftir ár, þar sem notendur deila hraðanum sín á milli sem sendarnir ná,“ segir hún og bætir við að stefnt sé að því að halda uppi afköstunum og þeim mikla hraða sem mælist á kerfum Símans.

„Allir 4G sendar í kerfi Símans styðja allt að 150 Mb/s hraða, hluti senda styður 225 Mb/s og hafnar eru prófanir á sendum sem ná allt að 300 Mb/s hraða í þeirri viðleitni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir