Skagafjörður verði leiðandi sveitarfélag í nýtingu sýndarveruleika

Gestir fengu að kynnast sýndarveruleiukanum í húsakynnum á Aðalgötu 21 þar sem Örlygsstaðabardagi verður færður til nútímans síðar á árinu. Mynd: PF
Gestir fengu að kynnast sýndarveruleiukanum í húsakynnum á Aðalgötu 21 þar sem Örlygsstaðabardagi verður færður til nútímans síðar á árinu. Mynd: PF

Í dag var, á táknrænan hátt, skrifað undir samstarfssamning milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Sýndarveruleika ehf. um uppbygginu og rekstur sýndarveruleikasýningar um atburði sem gerðust í Skagafirði á Sturlungaöld m.a. Örlygsstaðabardaga sem er fjölmennasta orrusta sem háð hefur verið á Íslandi. Undirritunin fór fram í Aðalgötu 21, í húsnæði því sem hýsa á sýninguna að viðstöddu sveitarstjórnar- og fjölmiðfólki sem og fulltrúum yngri kynslóðarinnar sem fengu að setja upp sýndargleraugu og prófa útbúnaðinn.

„Þetta er vonandi fyrsta skrefið af nokkrum í að til þess að draga að ferðamenn bæði innlenda og erlenda,“ segir Ingvi Jökull sem leiðir verkefnið fyrir hönd Sýndarveruleika ehf. Hann segir verkefnið metnaðarfullt og mjög jákvætt skref í þeirri nálgun.

Ingvi segir verkefnið hafa byrjar á einfaldri og skemmtilegri hugmynd sem nokkrir aðilar tóku ástfóstri við. „Þeir fara síðan af stað og reyna að safna fjárfestum og draga menn með sér í verkefnið sem er mjög metnaðarfullt bæði í tækilegri nálgun og ekki síst í því að þora að eiga samstarf og vinna að uppbyggingunni með sveitarfélaginu og íbúum Skagafjarðar. Hann segir aðspurður, fjármögnunina hafa gengið vel en bendir á þá staðreynd að hver sá sem hefur tekist á við svona verkefni viti að mörg símtöl eru að baki og mörg nei, áður en jáin koma.

„Staðan er þannig í dag að við erum að loka fjármögnunarvinnunni og eftir því sem ég best veit er einn aðili með aðalfund í dag sem við vonum eftir jákvæðu svari frá. Þetta er um 10%  sem við eigum eftir að loka og sú vinna heldur áfram. Við erum búin að tryggja fjármagn til að byrja og komumst mjög langt en við munum þurfa að halda áfram með fjármögnunarvinnuna samhliða.

Ingvi segir hugmyndina spretta upp úr vinnu sem snýr að því að búa til segul á Sauðárkrók, þar sem ekki sé nægjanlega mikil ferðamennska eða að ferðamenn staldri ekki nægilega lengi við í Skagafirði. „Þannig að við erum að reyna að fá fólk til að taka vinstri beygju eins og við köllum það þ.e. af hringveginum. Það er alveg klárt að það er áskorun en við lítum svo á að það er alveg nægur grunnur til að byggja á. Ferðamenn sem koma í Glaumbæ og sútunarverksmiðjuna benda til þess og mælingar vegna ferðamanna. Það er áskorun að ná ferðamönnum á staðinn til að staldra við í einhverja stund og vonandi gista og njóta bæjarins meira.“

Ingvi segir allar áætlanir ganga vel og framkvæmdir eru þegar hafnar við húsið. „Við vonumst til þess að ytri ásýnd verði lokið einhvern tímann í sumar, júní eða júlí, ef bestu áætlanir ganga eftir og þá eigum við eftir að ganga frá innan húss og fleira en stefnum á seinni part haustsins. Október er það sem við erum með eyrnamerkt í dag.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir