Skagastrandarlistinn kynnir framboð sitt

Framboðslisti Skagastrandarlistans (H-listi) fyrir sveitarstjórnarkosningar þann 26. maí nk. var samþykktur á fjölmennum fundi stuðningsmanna sem haldinn var í Bjarmanesi í gær.  Val á listann fór þannig fram að boðað var til opins fundar viku fyrr þar sem tekin var ákvörðun um að standa að framboði. Á þeim fundi var einnig kosin þriggja manna uppstillingarnefnd sem lagði tilllögu sína fyrir fundinn í gær og var hún samþykkt samhljóða.

Halldór G. Ólafsson leiðir listann, annað sætið skipar Péturína L. Jakobsdóttir og Róbert Kristjánsson er í því þriðja.

Listinn er þannig skipaður:

    1. Halldór G. Ólafsson, framkvæmdastjóri
    2. Péturína L. Jakobsdóttir, skrifstofustjóri
    3. Róbert Kristjánsson, verslunarstjóri
    4. Hrefna D. Þorsteinsdóttir, skrifstofumaður
    5. Jón Ólafur Sigurjónsson, skrifstofumaður
    6. Hafdís H. Ásgeirsdóttir, hársnyrtir
    7. Ástrós Elísdóttir, leikhúsfræðingur
    8. Gunnar S. Halldórsson, matreiðslumaður og sjómaður
    9. Guðrún Soffía Pétursdóttir, umsjónamaður starfs eldri borgara
    10. Adolf H. Berndsen, framkvæmdastjóri

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir