Staða sveitarstjóra Blönduósbæjar auglýst laus til umsóknar

Blönduós. Mynd: Northwest.is
Blönduós. Mynd: Northwest.is
Staða sveitarstjóra hjá Blönduósbæ hefur verið auglýst laus til umsóknar. Á auglýsingu á vef Blönduósbæjar segir að leitað sé eftir jákvæðum, heiðarlegum og kraftmiklum einstaklingi sem sé reiðubúinn til að leggja sig allan fram í krefjandi starfi. Viðkomandi þurfi að búa yfir góðri reynslu af því að starfa með fólki og eiga auðvelt með samskipti fyrir hönd sveitarfélagsins og að vera talsmaður þess, hvort sem er í samskiptum við opinbera stjórnsýslu, viðskiptavini, íbúa eða fjölmiðla.
 
Um starfssvið sveitarstjóra segir: „Sveitarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og sér um framkvæmd ákvarðana sem teknar eru af sveitarstjórn og byggðaráði. Sveitarstjóri skipuleggur og undirbýr dagskrá funda, situr fundi sveitarstjórnar, byggðaráðs og annarra nefnda eftir atvikum og hefur þar málfrelsi og tillögurétt. Sveitarstjóri leiðir atvinnuuppbyggingu og eflingu atvinnulífs á svæðinu og önnur verk sem honum kunna að vera falin."
 
Gerðar eru kröfur til 

menntunar og reynslu sem nýtist í starfi og að viðkomandi hafi farsæla reynslu af stjórnun, rekstri og samskiptum.
Þekking og reynsla af stefnumótun svo og þekking og reynsla af sveitarstjórnarmálum og opinberri stjórnsýslu er kostur og að umsækjandi hafi góða skipulagshæfileika, frumkvæði, hugmyndaauðgi og metnað til árangurs og hæfileika til að tjá sig í ræðu og riti. Einnig þarf viðkomandi að hafa l

eiðtogahæfileika með áherslu á frumkvæði, örugga ákvarðanatöku og skipulögð vinnubrögð.

 

 

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferlisskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. 
Umsóknarfrestur er til og með 2. júlí nk. og skal umsóknum skilað rafrænt á netfangið sveitarstjori@blonduos.is.

 


Nánari upplýsingar um starfið veita Guðmundur H. Jakobsson, formaður byggðaráðs, í síma 898 8489 og Rannveig Lena Gísladóttir, forseti sveitarstjórnar, í síma 893 0816. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir