Stefán Logi ráðinn framkvæmdastjóri Steinullar

Stefán Logi Haraldsson.
Stefán Logi Haraldsson.

Í sumar var auglýst staða framkvæmdastjóra Steinullar en Einar Einarsson, sem hefur verið framkvæmdastjóri um áraraðir, lætur senn af störfum. Nú hefur verið ráðið í stöðuna og ljóst að Stefán Logi Haraldsson mun taka formlega við sem framkvæmdastjóri eigi síðar en 1. apríl á næsta ári.

Árið 1999 hóf Stefán Logi störf hjá Vírneti og tók síðan við sem framkvæmdastjóri hjá sameinuðu Límtré Vírneti í Borgarnesi árið 2004. Árin 1987 til 1999 starfaði hann sem fjármálastjóri hjá Steinull, að undanskildu einu ári (sept. 1997 til sept. 1998) sem hann starfaði hjá sænska fyrirtækinu Paroc í Svíþjóð. Þá sat hann í stjórn Steinullar árin 2000 og 2001. Stefán er Samvinnuskólagenginn rekstrarfræðingur og hefur lokið fjölda námskeiða í stjórnun og stefnumótun erlendis og hérlendis..

Stefán er ættaður úr Fljótunum og tók þátt í bæjarpólitíkinni á Króknum á sínum tíma og var formaður knattspyrnudeildar Tindastóls. Hann er giftur Ingu S. Baldursdóttur og þau eiga fjögur uppkomin börn.

Að sögn Marteins Jónssonar, stjórnarformanns Steinullar hf, þá sóttu þrjátíu manns um stöðu framkvæmdastjóra og margir mjög góðir sem sýndu starfinu áhuga. Einar Einarsson, núverandi framkvæmdastjóri Steinullar, hóf störf sem framleiðslustjóri Steinullarverksmiðjunnar 1984 eða ári áður en hún tók til starfa. Hann tók við stöðu framkvæmdastjóra 1. september 1988.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir