Stoltur af mörgu sem nú er að baki

Kristján Þorbjörnsson.
Kristján Þorbjörnsson.

Kristján Þorbjörnsson fyrrum yfirlögregluþjónn á Blönduósi segir á Húna.is að hann hafi kallaður á skrifstofu nýs lögreglustjóra Norðurlands vestra sl. fimmtudag og verið tilkynnt þar formálalaust að starf hans væri lagt niður frá og með 1. júní 2017.  Honum hafi verið tjáð að hann mætti hætta störfum þá strax sem hann kaus að gera.

„Ég hef sinnt starfi mínu nú í um 36 ár, sem er töluvert langur tími. Ég er stoltur af því og lít á það sem forréttindi að hafa fengið tækifæri til þess að fá að þjóna þessu byggðarlagi og íbúum þess.  Forréttindin liggja í því að hér í byggðarlaginu liggja rætur aldagamallar íslenskrar menningar og sögu, sem er mér afar kær og ég er stoltur að vera hluti af.

Það er annarra að meta hvernig til hefur tekist á þessum árum en ég er stoltur af mörgu sem nú er að baki.

Kæru samferðarmenn. Ég vil þakka ykkur af alhug samstarfið og öll samskiptin á þessum árum. Þið hafði aldrei sýnt mér annað en sanngirni og velvild og þolað mér nokkra óþolinmæði, hvatvísi og líklega fleiri lesti.

Ykkur óska ég alls hins besta í allri framtíð og sérstaklega óska ég þess að byggðarlagið dafni og eflist og sem og áður ætla ég að vera einn af íbúum þess,“ segir Kristján Þorbjörnsson á Húna.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir