Festist í vegakanti á Þverárfjallsvegi

Strætó festist í vegakanti á Þverárfjallsvegi í gærkvöldi. Ljósm./Þuríður Harpa Sigurðardóttir.
Strætó festist í vegakanti á Þverárfjallsvegi í gærkvöldi. Ljósm./Þuríður Harpa Sigurðardóttir.

Strætó festist í vegakanti á Þverárfjallsvegi í gærkvöldi. Að sögn vegfaranda var umferð var hleypt framhjá og urðu því engar tafir vegna óhappsins. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi vestra hafði bílstjóri hópbifreiðarinnar gleymt að skila af sér farþega og ætlaði að snúa við er hann festist í vegakantinum.

Að sögn lögreglu var vörubifreið send á staðinn til þess að aðstoða við að losa bifreiðina. Þegar því var lokið hélt hún áfram leið sinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir