Sumardísin tekur völdin á Hvammstanga á morgun

Vetur konungur og Sumardísin ásamt fríðu föruneyti á Hvammstanga. Mynd: Norðanátt.
Vetur konungur og Sumardísin ásamt fríðu föruneyti á Hvammstanga. Mynd: Norðanátt.

Á morgun, sumardaginn fyrsta, verður að vanda mikið um dýrðir á Hvammstanga þar sem boðað er til hátíðahalda sem hefjast við félagsheimilið klukkan 14:00. Löng hefð er fyrir hátíð í tilefni sumarkomunnar á Hvammstanga og mun þetta vera í 62. skiptið sem hátíðarhöldin eru með sama sniði og nú er en til þeirra var í fyrsta skipti stofnað af þáverandi Fegrunarfélagi sem stóð fyrir gróðursetningu og byggði upp garðinn við sjúkrahúsið á Hvammstanga.

Fyrsta atriðið á dagskránni er skrúðganga sem hefst klukkan 14:00. Gengið verður frá félagsheimilinu með viðkomu á sjúkrahúsinu. Að göngunni lokinni verður hefðbundin dagskrá í félagsheimilinu þar sem Vetur konungur afhendir Sumardísinni völdin og sumarið hefur innreið sína í hjörtun með söng og gleði.  Þá verða spilaðar nokkrar umferðir af bingó í boði fyrirtækja í Húnaþingi vestra.

Öllum íbúum Húnaþings vestra, ásamt gestum og gangandi, er boðið í sumarkaffi í Félagsheimilinu Hvammstanga frá því skrúðgöngu lýkur til kl. 17:00. Sumarkaffið er stutt af Landsbanka Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir