Svæðisfundur um Norðurstrandarleiðina

Við veg nr. 76 sem er hluti af Norðurstrandarleiðinni. Mynd: FE
Við veg nr. 76 sem er hluti af Norðurstrandarleiðinni. Mynd: FE

„Hefur þú áhuga á að taka þátt í að móta nýtt og spennandi verkefni á Norðurlandi?“ Þannig hljóðar upphafið að tilkynningu frá Sveitarfélaginu Skagafirði þar sem auglýstur er svæðisfundur fyrir Skagafjörð um Norðurstrandarleiðina eða Arctic Coast Way sem nú er verið að móta.

Fundurinn verður haldinn á Ólafshúsi á morgun, 22. nóvember, frá kl. 16-18. Markmið fundarins er að draga fram það besta sem svæðið hefur upp á að bjóða í fjórum flokkum:
- Besta gönguleiðin.
- Besta ströndin.
- Besti staðurinn til að horfa á miðnætursólina.
- Besti staðurinn til að fylgjast með norðurljósum.

Fundurinn er opinn öllum þeim sem áhuga hafa á svæðinu og vilja taka þátt í mótun verkefnisins.

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku með því að senda póst á bryndisl@skagafjordur.is.

Eins og áður hefur komið fram á Feyki.is er Arctic Coast Way eða Norðurstrandarleið nýtt og spennandi verkefni sem ætlað er að draga athygli ferðamanna að strandlengjunni meðfram Norðurlandi. Verkefnið snýst um að búa til svokallaðan ferðamannaveg en slíkir vegir eru þekktir í ferðaþjónustu á heimsvísu sem verkfæri til að beina ferðamönnum eftir ákveðnum vegum á ákveðin svæði. Markaðsstofa Norðurlands heldur utan um verkefnið og er verkefnastjóri Christiane Stadler. Auk Markaðsstofunnar er sérstakur stýrihópur starfandi fyrir verkefnið. Í honum eru nú 17 manns sem koma frá öllu því svæði sem Arctic Coast Way nær til, frá Hvammstanga til Bakkafjarðar.

Fleiri fréttir af Norðurstrandarleið má finna hér: Norðurstrandarleið á góðum rekspölArctic Coastline Route - Strandvegur um Norðurland og Sveitarfélög í Húnavatnssýslum taka þátt í Arctic Coast Way

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir