Synti yfir Hrútafjörð

Sundgarpurinn Gauti Ásbjörnsson. Mynd úr einkasafni.
Sundgarpurinn Gauti Ásbjörnsson. Mynd úr einkasafni.

Fyrir nálægt 80 árum síðan eða þann 27. ágúst 1937, birtist svohljóðandi frétt í Vísi. „Síðastliðinn þriðjudag syntu yfir Hrútafjörð frá Gilsstöðum til Borðeyrar Baldur Pálsson 27 ára, Ásta Snæbjörnsson 20 ára og Hulda Pétursdóttir 16 ára, öll frá Borðeyri. Vegalengdin er um 1100 metrar og synti Hulda hana á 23 mínútum og var um 6 mínútum á undan hinum. Sjávarhiti var 8 stig. Ekki er kunnugt um að áður hafi verið synt yfir Hrútafjörð."

Á fimmtudaginn var endurtók dóttursonur Ástu Snæbjörnsson, Gauti Ásbjörnsson, afrek ömmu sinnar og synti yfir fjörðinn frá Gilsstöðum til Borðeyrar. Á þessum stað er fjörðurinn rúmlega kílómeters breiður og tók sundið 18 mínútur. Veður var gott, logn og blíða, og sjórinn alveg spegilsléttur þó hann verði nú samt alveg svartur og kaldur þegar fjær dregur landi, að sögn Gauta.

Gauti er 32 ára Sauðkrækingur sem býr í Svíþjóð um þessar mundir. Eins og áður segir er hann barnabarn Ástu, eins þremenninganna sem sundið  þreyttu fyrir 80 árum, en Steinunn Hjartardóttir, móðir Gauta er dóttir Ástu. Hann æfði sund á yngri árum en hóf að stunda sjósund fyrir u.þ.b. tveimur árum síðan. Hann segist alltaf hafa vitað af sundi ömmu sinnar, það hafi bara verið spurning um hvenær hann fetaði í fótspor hennar og form og veður leyfðu. Nú var reyndar tvöfalt tilefni til þar sem 80 ár eru liðin frá sundinu og þá ekki síður það að Ásta hefði orðið 100 ára fyrir nokkrum dögum síðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir