Þarfagreining á fræðsluþörf í Húnaþingi vestra

Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, tekur við skýrslunni úr hendi Bryndísar Þráinsdóttur, framkvæmdastjóra Farskólans. Mynd: Hunathing.is.
Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, tekur við skýrslunni úr hendi Bryndísar Þráinsdóttur, framkvæmdastjóra Farskólans. Mynd: Hunathing.is.

Síðastliðið vor var gerður samningur milli Húnaþings vestra, Farskólans, mannauðssjóðs Kjalar og Sveitamenntar, sem er starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni,  um að gerð yrði þarfagreining á fræðsluþörf meðal starfsmanna sveitarfélagsins. Markmiðið með vinnunni er að koma símenntun og starfsþróun starfsmanna í ákveðinn farveg, auka starfsánægju og bæta þjónustu, ásamt því að gera fræðsluáætlun með hugmyndum um fræðslu til stafsmanna. Frá þessu segir á vef Húnaþings vestra. 

Starfsfólk stofnana lagði fram tillögur að fulltrúa í stýrihóp til að vinna að þessari áætlun með Farskólanum. Í hópinn voru valin þau Borghildur Heiðrún Haraldsdóttir frá leikskólanum, Hulda Signý Jóhannesdóttir frá grunnskólanum, Helena Halldórsdóttir frá ráðhúsi, Kristján Svavar Guðmundsson frá þjónustumiðstöð og Vigdís Lillý Sigurjónsdóttir frá bóka- og skjalasafni.

Verkefninu lauk í byrjun nóvember þegar Bryndís Þráinsdóttir framkvæmdastjóri Farskólans afhenti skýrslu um niðurstöður úr viðhorfskönnun sem gerð var á meðal allra starfsmanna sveitarfélagsins  ásamt drögum að fræðsluáætlun til þriggja ára.  Meðal þeirra námskeiða sem starfsmenn óska eftir eru tölvunámskeið, hópefli, matreiðsla, samskipti á vinnustað, skyndihjálp og fagnámskeið. 

Nú þegar er farið að vinna eftir áætluninni og er nú í gangi íslenskukennsla fyrir einstaklinga af erlendum uppruna. Eftir áramótin verða svo haldin fleiri námskeið sem starfsmenn hafa óskað eftir í samvinnu við ýmsa aðila.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir