Tindastóll tekur á móti Einherja í kvöld

Jesse Shugg var með þrennu í síðasta leik
Jesse Shugg var með þrennu í síðasta leik

Tindastóll mætir Einherja í kvöld í C-riðli 1.deildar kvenna en leikurinn fer fram á Sauðárkróksvelli kl. 18:00.

Ljóst er að Stólastelpurnar eiga góðan möguleika á sigri en Vopnfirðingarnir tróna efstir á toppi riðilsins með 13 stig úr sex leikjum en Tindastóll er með sex stig úr þremur leikjum og eiga því heila þrjá leiki til góða. Stelpurnar mættu Einherja í júní í miklum markaleik og stóðu uppi sem sigurvegarar með sex mörk á móti þremur mörkum Einherja. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir