Tónleikar á ágústkvöldi

Hjónin Kristján og Kristjana frá Tjörn í Svarfaðardal skemmta í Héðinsminni næstkomandi föstudagskvöld. Mynd/svarfdaelasysl.com
Hjónin Kristján og Kristjana frá Tjörn í Svarfaðardal skemmta í Héðinsminni næstkomandi föstudagskvöld. Mynd/svarfdaelasysl.com

Föstudagskvöldið, 26. ágúst kl. 21:00, verða tónleikar í Héðinsminni þar sem hjónin á Tjörn í Svarfaðardal, Kristjana og Kristján, skemmta á sinn einstaka hátt. „Þau eru löngu landskunn og það er einfaldlega mannbætandi að hlýða á þau og njóta tónlistarinnar,“ segir í auglýsingu í Sjónhorninu sem kom út í dag. 

Aðgangseyrir 2500 kr. Athugið að kort eru ekki tekin. Ágóði tónleikanna rennur til tækjakaupa í Miklabæjarkirkju. 

„Verið öll velkomin og eigið með okkur notalegt ágústkvöld í sveitinni,“ segir loks í auglýsingunni frá Kvenfélagi Akrahrepps. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir