Tröll gera víðreist

Tröll er endurtúlkun á sumum vinsælustu tröllasögum landsins. Mynd: Handbendi - brúðuleikhús.
Tröll er endurtúlkun á sumum vinsælustu tröllasögum landsins. Mynd: Handbendi - brúðuleikhús.

Handbendi – brúðuleikhús, atvinnuleikhús á Norðurlandi vestra, sem rekið er á Hvammstanga sýnir brúðuverkið Tröll eftir Gretu Clough í Tjarnarbíói þann 30. september kl. 15:30. Í framhaldi af því verða nokkrar sýningar á verkinu á Norðurlandi en að þeim loknum verður haldið  til Englands þar sem sýnt verður á nokkrum stöðum áður en leikferðinni lýkur með sýningu í South Bank Centre í Lundúnum. Það verður að teljast merkilegur viðburður að verk frá atvinnuleikhúsi sem rekið er í litlu þorpi eins og Hvammstanga sýni í jafn glæsilegu húsi og South Bank Centre er, við bakka Thames í miðborg Lundúna.

Tröll var frumsýnt á Akureyri þann 11. febrúar og hefur nú þegar verið sýnt rúmlega 30 sinnum. Handbendi sýnir einnig Kúrudag víða um heim, og býður upp á brúðusýninguna  Búkollu fyrir skóla á Íslandi, bæði til einkasýninga, og í gegnum verkefnið List fyrir alla.

Í fréttatilkynningu frá Handbendi segir þetta um sýninguna Tröll:

„Ég trúi á Truntum Runtum og tröllin mín í klettunum.“

Í 17 milljón ár (gæti skeikað um öld eða tvær) hafa tröllin átt þessa eyju alveg fyrir sig. Þau grófu gljúfur, gerðu sér heimilislega skúta, og nutu kyrrðar og friðar miðnætursólarinnar. Tröllin voru glöð. En núna… Núna er allt breytt. Mannfólkið er komið. Það byggir hús. Leggur vegi. Hefur hátt… Svo óskaplega hátt. Geta þessar ólíku verur búið saman?
Tröll er endurtúlkun á sumum vinsælustu tröllasögum landsins, sögð með sjónarhorni lítillar telpu og óvanalega vininum hennar úr fjöllunum. Brúðurnar eru handgerðar, og hljóðmyndin er samin af hinu virta breska tónskáldi Paul Mosley, en söngurinn er í höndum heimamanna í Húnaþingi vestra. Þetta er svolítil þjóðsaga, smá draugasaga, eintómir töfrar. Tröll eru ógleymanleg leikhúsupplifun fyrir alla fjölskylduna.
Framleitt og skapað af Handbendi – brúðuleikhúsi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir