Úrslit helgarinnar í körfunni hjá yngri flokkum

Það var barist í törneringu í Síkinu á dögunum. Mynd: Óli Arnar.
Það var barist í törneringu í Síkinu á dögunum. Mynd: Óli Arnar.

Það var mikið um að vera í körfuboltanum um helgina. Stúlknaflokkur mætti Haukum á Sauðárkróki og biðu lægri hlut fyrir gestunum, 51:71. Unglingaflokkur kvenna tók á móti Þór Akureyri og þar biðu heimastúlkur einnig lægri hlut, 61:73.

Sjöundi flokkur stúlkna fór alla leið til Ísafjarðar og lék þrjá leiki í törneringu, með Þór Akureyri. Sá fyrsti var á móti Njarðvíkurstúlkum og fór hann 3:51 fyrir Tindastól/ Þór Akureyri. Annar leikurinn var á móti KR og aftur unnu Tindastóll/Þór Akureyri stóran sigur, 41:18. Í þriðja leiknum tapaði Tindastóll/ Þór Akureyri fyrir KFÍ, 29:35.

Loks mætti unglingaflokkur karla Grindavík í Mustad höllinni en Feyki hafa ekki borist úrslit úr þeim leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir