Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá sveitarfélögum

Á vefnum sýslumenn.is er að finna upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar.
Á vefnum sýslumenn.is er að finna upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar.

Á undanförnum áratugum hefur kosningaþátttaka í kosningum á Íslandi farið minnkandi, og þá sérstaklega í sveitarstjórnarkosningum. Á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa farið fram umræður um hvernig hægt sé að bregðast við þessari þróun og snúa henni við.

M.a. hefur verið horft til annarra norrænna ríkja en þar hefur kosningaþátttaka einnig breyst til hins verra. Þar hafa verið gerðar tilraunir með aukið aðgengi að utankjörfundaratkvæðagreiðslu með ýmsum hætti. Þær tilraunir eru sagðar hafa aukið kosningaþátttöku merkjanlega.

Fyrir forsetakosningarnar sl. sumar var ákveðið í samstarfi sambandsins og sýslumanna á Íslandi að gera tilraun með aukið aðgengi að utankjörfundaratkvæðagreiðslu með vísan til ákvæða í 58. gr. laga um kosningar til Alþingis þar sem segir m.a. í a-lið greinarinnar, að sýslumenn geti ráðið sérstaka trúnaðarmenn til þess að annast störf kjörstjóra við utankjörfundaratkvæðagreiðslu.

Í tilrauninni tóku 16 sveitarfélög og byggðasamlög þátt og var almenn ánægja með hvernig til tókst. Sérstaklega var mikil ánægja hjá þeim sem nýttu sér þessa auknu þjónustu í heimabyggð og þurftu því ekki að fara um langan veg til þess að geta kosið utan kjörfundar hjá sýslumönnum.

Innanríkisráðuneytið óskaði eftir því í ágúst sl., að sambandið og sýslumenn beittu sér fyrir því að boðið yrði upp á aukið aðgengi að utankjörfundaratkvæðagreiðslu í samstarfi við sveitarfélög við alþingiskosningarnar 29. október 2016.

Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslur á vegum sýslumanna er að finna á vefnum www.syslumenn.is.

Fréttatilkynning

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir