Útskrift Marel fiskvinnslutækna frá Fisktækniskóla Íslands

Útskriftarhópurinn úr Marel fisktæknináminu. Jóhanna Sigurlaug er fimmta frá hægri á myndinni og Tryggvi Karl er fyrir miðri mynd (sjöundi frá hægri). Mynd: Fisktækniskólinn.
Útskriftarhópurinn úr Marel fisktæknináminu. Jóhanna Sigurlaug er fimmta frá hægri á myndinni og Tryggvi Karl er fyrir miðri mynd (sjöundi frá hægri). Mynd: Fisktækniskólinn.

Á þriðjudaginn, þann 6. desember útskrifaðist annar árgangur Marel vinnslutækna frá Fisktækniskóla Íslands. Þetta nám er tilsniðið að þörfum fiskvinnslunnar sem sífellt verður tæknivæddari með áherslu á framleiðslugæði og hámarksnýtingu hráefnis. Mikill skortur er á fólki með ákveðna tækni-, hugbúnaðar- og vinnsluþekkingu í fiskiðnaði og svarar þetta nám kalli iðnaðarins.

Meðal útskriftarnema voru þau Jóhanna Sigurlaug Eiríksdóttir á Sauðárkróki og Tryggvi Karl Hlynsson á Skagaströnd. Jóhanna er fyrsta konan sem útskrifast úr þessu námi. Alls luku átta einstaklingar námi í þessum áfanga nú á haustönn. Nemendur komu frá ýmsum stöðum á landinu svo sem Reykjavík, Vestmannaeyjum, Sauðárkrói, Akureyri og Fáskrúðsfirði. Það var glaðhlakkalegur hópur sem tók við prófskírteinum og minjagrip um námið í húsakynnum Marel ásamt sínum nánustu. Námið gefur nemendum góða möguleika á að bæta enn frekar við sig þekkingu og þar með aukna möguleika á vinnumarkaði.  Innritun fyrir vorönn er þegar hafin hjá Fisktækniskóla Íslands en hámarksfjöldi verður takmarkaður við 9 einstaklinga. 

Námið skiptist í tvær annir, grunnnám á haustönn og sérhæft nám í Marel búnaði á vorönn. Hlutverk grunnámsins er byggja upp bakgrunn nema til að hann eigi auðveldara með að tileinka sér tæknilegt efni sem kennt er nær eingöngu á Marel tæki og hugbúnað í húsakynnum Marel.  Kennt er í lotum þar sem farið er í ákveðna tækjaflokka, svo sem framleiðsluhugbúnað, vogir, snyrtilínur, skurðarvélar ofl. Í lok annarinnar er farið í vinnustaðagreiningar og lagt fyrir lokaverkefni sem felst í að greina vinnsluferli valdra fiskvinnslufyrirtækja með það að markmiði að auka afköst, gæði og skilvirkni.

Að loknu námi hafa menn góða innsýn í virkni tækja og hugbúnaðar í fiskvinnslu og geta sinnt ákveðnu fyrirbyggjandi viðhaldi ásamt því að geta sett upp einfalda staðlaða vinnslulykla í helstu Marel tækjum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir