Valdimar O. Hermannsson ráðinn sveitarstjóri Blönduósbæjar

Valdimar O. Hermannsson. Mynd: Aðsend
Valdimar O. Hermannsson. Mynd: Aðsend

Sveitarstjórn Blönduósbæjar hefur ráðið Valdimar O. Hermannsson sem sveitarstjóra og var ráðningin staðfest á fundi sveitarstjórnar í gær, 12. júlí. Valdimar hefur undanfarin tvö ár starfað sjálfstætt, meðal annars sem verkefnastjóri, nú síðast fyrir Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga.

Valdimar er markaðsfræðingur að mennt en hefur einnig lagt stund á fjölbreytt nám, m.a. í viðskiptafræðum, stjórnun, markmiðasetningu og leiðtogaþjálfun bæði hérlendis sem og í Evrópu, Japan og USA.

Valdimar var kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn Fjarðabyggðar í 12 ár og sat þar í bæjarráði í 6 ár. Hann hefur gengt fjölmörgum trúnaðarstörfum á vettvangi sveitarstjórnarstigsins á landsvísu, m.a. sem formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, stjórnarformaður Austurbrúar ses, Náttúrustofa Austurlands, HAUST og SHÍ. Þá situr hann í ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, og þekkir því vel til stöðu sveitarfélaga á svæðinu.

Áður starfaði Valdimar meðal annars í 12 ár sem rekstrarstjóri hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands og um tíma einnig sem forstöðumaður innkaupasviðs HSA en þar áður aðallega við innkaupa- og rekstrarstjórn fyrirtækja.Valdimar er í sambúð með Vilborgu Elvu Jónsdóttur, hjúkrunarfræðingi.

Sveitarstjórn Blönduósbæjar fagnar ráðningu Valdimars og hlakkar til að takast á við þau fjölbreyttu verkefni sem framundan eru í samstarfi við hann. Valdimar mun hefja störf sem sveitarstjóri Blönduósbæjar 14. ágúst n.k.  samkvæmt samkomulagi þar um.

Fyrir hönd sveitarstjórnar,

Rannveig Lena Gísladóttir

Forseti sveitarstjórnar

Guðmundur Haukur Jakobsson

Formaður byggðaráðs

 Sveitarstjórn

/Fréttatilkynning

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir