Vinnuskólalaun hækka í Skagafirði

Lagðar voru fram tvær tillögur um hækkun launa í Vinnuskóla Svf. Skagafjarðar á fundi félags- og tómstundanefndar í gær eftir að ábendingar bárust um að tímakaup í skólanum væri lægra en almennt gerist í sveitarfélögum landsins. Annars vegar kom tillaga um 15% hækkun og hins vegar um krónutöluhækkun. Áður hafði nefndin ákveðið að hækka laun um 3% frá árinu á undan og vísaði m.a. til uppfærðrar launatöflu á heimasíðu sveitarfélagsins.

Í bókun nefndarinnar segir:

„Sveitarfélaginu hafa borist gagnlegar ábendingar um að tímakaup í Vinnuskóla sé lægra en almennt gerist í sveitarfélögum landsins. Þótt tímakaup hafi verið lægra eru heildarlaun engu að síður við landsmeðaltal, en það skýrist af lengra vinnutímabili sem Sveitarfélagið Skagafjörður býður upp á. Auk þess býður sveitarfélagið nemendum 7. bekkjar að stunda Vinnuskólann, eitt fárra sveitarfélaga í landinu. Félags- og tómstundanefnd hefur ákveðið að bregðast við þessum ábendingum íbúa og hækka tímakaup í Vinnuskólanum þannig að það standist vel samanburð við önnur sveitarfélög án þess að stytta vinnutímabilið. Ítrekað er að í Vinnuskólanum er reynt að flétta saman fræðslu og vinnu á jákvæðan hátt og telur nefndin mikilvægt að börn og unglingar í Sveitarfélaginu Skagafirði eigi áfram völ á fjölbreyttum viðfangsefnum yfir sumartímann.

Lagt er til að tímakaup í Vinnuskólanum hækki frá því sem samþykkt var á fundi nefndarinnar þann 27. apríl s.l. sem hér segir:

Tímakaup nemenda í 7. bekk hækki úr 417 krónum í 537 krónur sumarið 2018.

Tímakaup nemenda í 8. bekk hækki úr 474 krónum í 594 krónur sumarið 2018.

Tímakaup nemenda 9. bekkjar hækki úr 563 krónum í 683 krónur sumarið 2018.

Tímakaup nemenda 10. bekkjar hækki úr 710 krónum í 830 krónur sumarið 2018.

Félags- og tómstundanefnd fagnar því að hægt sé að bregðast við ábendingum íbúa og verða við óskum um hækkun launa í Vinnuskólanum, en það er hægt vegna góðrar fjárhagsstöðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar.“

Tillaga um krónutöluhækkunina var samþykkt samhljóða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir