XL – Byggðalistinn í Skagafirði
Nýtt framboð, Byggðalistinn, mun bjóða fram til komandi sveitarstjórnarkosninga í Skagafirði og er með listabókstafinn L. Ólafur Bjarni Haraldsson í Brautarholti leiðir listann en Jóhanna Ey Harðardóttir á Sauðárkróki, Sveinn Úlfarsson á Ingveldarstöðum og Ragnheiður Halldórsdóttir í Brimnesi koma þar á eftir. Jón Drangeyjarjarl Eiríksson skipar heiðurssætið, eftir því sem kemur fram á Facebooksíðu Byggðalistans.
Frambjóðendur Byggðalistans í sveitarstjórnarkosningum í Skagafirði 2018:
1. Ólafur Bjarni Haraldsson
2. Jóhanna Ey Harðardóttir
3. Sveinn Úlfarsson
4. Ragnheiður Halldórsdóttir
5. Högni Elfar Gylfason
6. Anna Lilja Guðmundsdóttir
7. Svana Ósk Rúnarsdóttir
8. Sigurjón Leifsson
9. Þórunn Eyjólfsdóttir
10. María Einarsdóttir
11. Margrét Eva Ásgeirsdóttir
12. Jón Sigurjónsson
13. Jón Einar Kjartansson
14. Jónína Róbertsdóttir
15. Alex Már Sigurbjörnsson
16. Helgi Sigurðsson
17. Guðmundur Björn Eyþórsson
18. Jón Eiríksson
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.