Yfirfullir sorpgámar í Fljótum

Þessa mynd tók lesandi Feykis í Fljótum á miðvikudaginn í síðustu viku.
Þessa mynd tók lesandi Feykis í Fljótum á miðvikudaginn í síðustu viku.

Sumarhúsaeigandi í Fljótum hafði samband við Feyki og vildi koma því á framfæri að ástand á ruslagámum þar í sveit væri fyrir neðan allar hellur. Sendi viðkomandi Feyki meðfylgjandi mynd og nefndi að vegur að þremur sumarbústöðum lægi í gegnum sorpsvæðið.

„Fasteignagjöldin fara í raun eingöngu í sorphirðu, það er eina þjónusta sveitarfélagsins til okkar,“ sagði sumarhúsaeigandinn og sagðist vonast til að bragarbót yrði gerð á þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir