Fákaflug á Hólum um helgina

Frá Landsmóti hestamanna á Hólum í fyrra. Mynd/BG
Frá Landsmóti hestamanna á Hólum í fyrra. Mynd/BG

Um næstu helgi, dagana 28. - 30. júlí, verður hestamótið Fákaflug haldið á Hólum í Hjaltadal. Það er Hestamannafélagið Skagfirðingur sem heldur mótið í samstarfi við hestamannafélögin Létti, Hring, Funa, Snarfara, Þyt og Neista.

Riðin verður sérstök forkeppni í A-flokki, B-flokki, barnaflokki, unglingaflokki og ungmennaflokki. Auk þess verður keppt í pollaflokki.

Skráning fer fram á sportfengur.com  og mælt er með því að merkja við skráningu hvaða mót er greitt fyrir.
Síðasti skráningardagur er í dag, þriðjudaginn 25. júlí, til kl. 20:00. Berist skráning eftir þann tíma tvöfaldast skráningargjaldið.
Boðið verður upp á leigu á hesthúsaplássum á staðnum.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Hestamannafélagsins Skagfirðings.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir