Lara belgískur meistari í slaktaumatölti

Lara Margrét og Örk frá Hjarðartúni. Mynd úr einkasafni.
Lara Margrét og Örk frá Hjarðartúni. Mynd úr einkasafni.

Lara Margrét Jónsdóttir frá Hofi í Vatnsdal, stefnir á að komast í hollenska landsliðið á Heimsmeistaramótinu í hestíþróttum, sem haldið verður í Hollandi í sumar. Til þess að öðlast keppnisreynslu, og safna sér inn punktum, tók hún þátt í Belgíska Meistaramótinu um síðastliðna helgi á hryssunni Örk frá Hjarðartúni.

Þær Lara Margrét og Örk gerðu sér lítið fyrir og sigruðu slaktaumatölti, T4, og enduðu auk þess í þriðja sæti í fjórgangi. Þær stöllur munu taka þátt í fleiri mótum í Hollandi og Belgíu á næstunni á leið sinni að markmiðinu. Lara Margrét er með tvöfalt ríkisfang dóttir þeirra Eline Manon Schrijver og Jóns Gíslasonar á Hofi. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir