Lokakvöld Meistaradeildar KS fer fram á morgun

Skeiðgarparnir Gísli Gíslason, Bjarni Jónasson og Þórarinn Eymudsson. Mynd: KS deildin.
Skeiðgarparnir Gísli Gíslason, Bjarni Jónasson og Þórarinn Eymudsson. Mynd: KS deildin.

Nú fer spennan að ná hámarki í Meistaradeild KS en lokakvöld keppninnar fer fram á morgun, föstudaginn 13. apríl í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Athygli er vakin á því að mótið hest kl 18:30. Keppt verður í tveimur greinum, tölti og skeiði. Helga Una Björnsdóttir leiðir einstaklingskeppnina fyrir lokakvöldið og lið Hrímnis leiðir liðakeppnina en eins og fram kemur í tilkynningu frá keppnisstjórn getur allt gerst þar sem keppt verður í tveimur greinum.

Sýnt verður beint frá keppninni og er slóðin https://vjmyndir.cleeng.com/meistaradeild-ks-2018-tolt-og-skeid/E685273404_IS

„Við hvetjum alla norðlendinga til að fjölmenna í höllina, sjá spennandi keppni og frábær hross. Folatollahappdrættir verður á staðnum,“ segir í tilkynningunni. 

Tölt

1.Flosi Ólafsson – Varða frá Hofi - Mustad-Miðsitja
2.Elvar Logi Friðriksson - Griffla frá Grafarkoti - Lífland-Kidka
3.Gísli Gíslason - List frá Þúfum - Þúfur
4.Helga Una Björnsdóttir - Þoka frá Hamarsey - Hrímnir

5.Baldvin Ari og Tópas frá Efri Rauðalæk - Team Bautinn
6.Hörður Óli Sæmundarson -Blær frá Laugardal - Íbess-TopReiter
7.Lilja Pálmadóttir - Fannar frá Hafsteinsstöðum - Hofstorfan
8.Freyja Amble Gísladóttir  - Pílatus frá Þúfum - Þúfur

9.Sina Scholz og Nói frá Saurbæ - Mustad-Miðsitja
10.Konráð Valur Sveinsson -  Frú Lauga frá Laugavöllum - Lífland-Kidka
11.Fríða Hansen - Kvika frá Leirubakka - Íbess-TopReiter
12.Gústaf Ásgeir Hinriksson - Sprengjuhöll frá Lækjarbakka - Hofstorfan

13.Þórarinn Eymundsson - Laukur frá Varmalæk - Hrímnir
14.Vignir Sigurðsson og Nói frá Hrafnsstöðum - Team Bautinn
15.Viðar Bragason og Lóa frá Gunnarsstöðum - Team Bautinn
16.Fanney Dögg Indriðadóttir - Trygglind frá Grafarkoti  - Lífland-Kidka

17.Pétur Örn Sveinsson og Hlekkur frá Saurbæ - Mustad-Miðsitja
18.Guðmar Freyr Magnússon  - Staka frá Stóra-Ármóti - Íbess-TopReiter
19.Jóhanna Margrét Snorradóttir - Kári frá Ásbrú - Hrímnir
20.Mette Mannseth - Karl frá Torfunesi - Þúfur
21.Bjarni Jónasson - Úlfhildur frá Strönd  - Hofstorfan

 Skeið

1.Þórarinn Eymundsson - Bandvöttur frá Miklabæ - Hrímnir
2.Svavar Örn Hreiðarsson - Flugar frá Akureyri - Lífland-Kidka
3.Þorsteinn Björnsson  - Spyrna frá Þingeyrum - Mustad-Miðsitja
4.Viðar Bragason - Þórir frá Björgum - Team Bautinn

5.Gústaf Ásgeir Hinriksson - Björt frá Bitru - Hofstorfan
6.Gísli Gíslason - Nikulás frá Langholtsparti - Þúfur
7.Guðmar Freyr Magnússon- Hagur frá Skefilsstöðum - Íbess-TopTopReiter
8.Baldvin Ari - Dögg frá Efri Rauðalæk - Team Bautinn

9.Jóhann Magnússon- Fröken frá Bessastöðum - Íbess-TopReiter
10.Bjarni Jónasson - Hrappur frá Sauðárkróki - Hofstorfan
11.Freyja Amble Gísladóttir  - Dalvík frá Dalvík - Þúfur
12.Jón Óskar Jóhannesson - Tinna Svört frá Glæsibæ - Mustad-Miðsitja

13.Jóhanna Margrét Snorradóttir - Gletta frá Bringu - Hrímnir
14.Elvar Logi Friðriksson -  Þyrill frá Djúpadal - Lífland-Kidka
15.Elvar Einarsson Segull frá Halldórsstöðum - Hofstorfan
16.Konráð Valur Sveinsson  - Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II - Mustad-Miðsitja

17.Hörður Óli Sæmundarson - Hvönn frá Steinnesi - Íbess-TopReiter
18.Mette Mannseth  - Grótta frá Hólum - Þúfur
19.Helga Una Björnsdóttir - Korði frá Kanastöðum - Hrímnir
20.Flosi Ólafsson - Hófur frá Hóliv/Dalvík - Mustad-Miðsitja
21.Vignir Sigurðsson - Snarpur frá Nýjabæ - Team Bautinn

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir