Meistaradeild KS 2018 - Mustad-Miðsitja

Sjötta liðið sem kynnt er í KS -deildina í hestaíþróttum 2018 er Mustad-Miðsitja. Liðið skipa fimm knapar frá Hólum, kennarar og nemendur sem verða undir stjórn Sinu Scholz tamningakonu á Miðsitju. 

Sina er liðsstjóri og með henni eru Flosi Ólafsson, Jón Óskar Jóhannesson, Pétur Örn Sveinsson og Þorsteinn Björnsson. Þarna kemur nýr inn Jón Óskar og Þorsteinn Björnsson tekur fram keppnisjakkann að nýju.

Forvitnilegt lið sem gæti gert góða hluti í vetur og halað inn mörg stig, eins og segir í kynningu frá Meistaradeildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir