Síðasti skráningardagur á Opna íþróttamót Þyts

Opna íþróttamót Þyts verður haldið á Kirkjuhvammsvelli dagana 18. - 19. ágúst 2017. Í tilkynningu frá félaginu segir að sráningar skuli berast fyrir miðnætti þriðjudaginn 15. ágúst, þ.e. í kvöld, inn á skráningakerfi Sportfengs 

 

Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka eða fella niður ef ekki næst næg þátttaka. Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 3.500 kr. Fyrir börn og unglinga 1.500 kr. Í skeiði er skráningargjaldið 1500 kr. á hest. Þá eru þeir sem hafa farandbikara hjá sér beðnir að koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst.

 

Greinar:

4-gangur V2 og tölt T3 1 flokkur

4-gangur V2 og tölt T3 2 flokkur

4-gangur V2 og tölt T3 ungmennaflokkur (18-21 árs á keppnisárinu)

4-gangur V2 og tölt T3 unglingaflokkur (14-17 ára á keppnisárinu)

4-gangur V5 og tölt T7 barnaflokkur (10-13 ára á keppnisárinu) (V2 í Sportfeng)

Pollaflokkur (9 ára og yngri á árinu) Verkefni: 3 til 5 keppendur inn á vellinum í einu. Þulur stjórnar keppni, riðið að lágmarki 3 hringir.

5-gangur 1.flokkur F2

Tölt T2 1.flokkur

T7 og V5

gæðingaskeið

100 metra skeið

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir