Æfingabúðir í Júdó á Blönduósi

Frá æfingabúðum í júdó á Blönduósi. Mynd: Garðar Hrafn Skaptason.
Frá æfingabúðum í júdó á Blönduósi. Mynd: Garðar Hrafn Skaptason.

Júdófélagið Pardus á Blönduósi stóð fyrir æfingabúðum í júdó um helgina þar sem iðkendur frá júdódeildum Tindastóls og UMF Selfoss komu í heimsókn. Um fimmtíu júdóiðkendur og þjálfarar tóku þátt í æfingabúðunum, sem voru sambland af júdóæfingum og afþreyingu utan æfingatíma. Á heimasíðu Tindastóls segir að helgin hjá iðkendum félagsins hafi byrjað rétt eftir hádegi á laugardaginn með rútuferð á Blönduós.

"Eftir æfingu, sem stóð frá 14:00 til 15:30, bauð Pardus þátttakendum í sund þar sem hægt var að slaka á í heitu pottunum, skvettast um í sundlauginni eða dengja sér niður vatnsrennibrautirnar. Eftir skvett, svaml og sull í lauginni færðist fjörið út á leiksvæðið þar sem ærslabelgurinn og leiktækin voru óspart reynd. Eftir góða stund utan dyra var svo farið í félagsmiðstöðina Skjólið þar sem margs konar afþreying var í boði. 

Dagurinn endaði svo með pítsuveislu á B&S í boði Pardusar - en þar var hraustlega tekið á áti eftir orkufrekan dag. Ekki var annað að sjá en að dagurinn hafi lukkast vel ef marka má fjörið í rútuferðinni til baka á Sauðárkrók.

Sunnudagurinn hófst svo með æfingu klukkan 10:00 um morguninn sem stóð til 11:30. Eftir æfinguna bauð Júdódeild UMF Selfoss öllum upp á pylsur og drykki í hádegisverð áður en þau lögðu af stað heim á leið suður yfir heiðar. Eftir hádegisverðinn nýttu flestir iðkendur Tindastóls sér frímiða í sund áður en haldið var til baka í Skagafjörðinn," segir á Tindastóll.is.

Sjá nánar á heimasíðu Júdódeildar Tindastóls en þar er einnig að finna myndir frá helginni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir