Kvennasveit GSS leikur í efstu deild að ári

Að loknu móti er silfurpeningur í hús. Mynd: GSS.
Að loknu móti er silfurpeningur í hús. Mynd: GSS.

 

Íslandsmót golfklúbba í flokki fullorðinna fór fram um síðustu helgi í öllum deildum á landinu og stóðu sveitir Golfklúbbs Sauðárkróks sig mjög vel í sínum deildum, eftir því sem kemur fram á heimasíðu klúbbsins.

Lokadagur á Kálfatjarnarvelli í 3.deildinni. Mynd: GSS. Kvennasveit GSS lék í 2. deild á Bárarvelli við Grundarfjörð hjá Golfklúbbnum Vestarr og gerðu sér lítið fyrir og urðu í 2. sæti í deildinni og leika því í efstu deild á næsta ári. Sannarlega glæsilegur árangur.

Karlasveit GSS lék í 3. deild á Kálfatjarnarvelli á Vatnsleysuströnd hjá Golfklúbbi Vatnsleysustrandar. Sveitin endaði í 5. sæti og leikur því að ári áfram í 3. deild.

Hægt er að skoða úrslit í öllum leikjum á www.golf.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir