Styrktarmót fyrir Arnar Geir

Arnar Geir Hjartarson. Mynd úr einkasafni.
Arnar Geir Hjartarson. Mynd úr einkasafni.

Golfklúbbur Sauðárkróks ætlar að halda styrktarmót fyrir Arnar Geir Hjartarson þann 14. ágúst nk. en hann er á leið til Bandaríkjanna á ný í háskólanám í Missouri Valley College á skólastyrk vegna golfiðkunar um miðjan ágúst. Á heimasíðu GSS segir að slegið verði upp léttu móti þar sem spilaðar verða 9 holur og kaffi og kökur í boði fjölskyldunnar að loknu móti.

„Við ætlum að ræsa út af öllum teigum samtímis kl.17:15 og gott væri að allir myndu vera mættir kl.17:00 til að hægt væri að raða hollum á teiga. Óvænt verðlaun í boði. Hver veit nema Arnar Geir verði úti á velli og taki högg á einhverjum brautum fyrir þátttakendur,“ segir á gss.is.

Mótsgjaldið er 2.000,- eða frjálst eftir því sem hver og einn vill og vonast mótshaldarar til að sjá sem allra flesta og eiga saman notalega stund í mótslok.

Allir velkomnir í kaffi eftir mót óháð því hvort þeir taka þátt í mótinu eða ekki.

Skráning er á www.golf.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir