Tindastóll - Keflavík í kvöld

Spennan er allsráðandi á toppi Domino´s deildar karla en fjórir leikir fara fram í kvöld. Tindastóll tekur á móti Keflavík, Stjarnan á móti Val, Þór A mætir Njarðvík syðra og Haukar heimsækja Hött á Egilsstöðum. KR og Grindavík mætast á morgun en í gærkvöldi sigraði Þór Þorlákshöfn topplið ÍR með tveggja stiga mun 70 – 68 í Hertz Hellinum í Seljaskóla.

Haukar, KR og ÍR raða sér í þrjú efstu sætin, öll með 24 stig en Tindastóll situr í fjórða sætinu með 22 stig. Á fésbókarsíðu körfuknattleiksdeildar Tindastóls eru allir hvattir til að mæta og taka þátt í þessu saman og bent á að borgararnir séu á sínum stað. Ekki láta þá fara framhjá þér!

Staðan í Domino´s deildinni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir