Titleist Footjoy Norðurlandsmótaröðin 2018 - Nýprent Open

Mynd af Pexels.com
Mynd af Pexels.com

Fyrsta mótið í Norðurlandsmótaröðinni verður 17. júní á Sauðárkróki og samkvæmt tilkynningu frá Golfklúbbi Sauðárkróks hentar mótið mjög vel fyrir byrjendur jafnt og lengra komnum. 

Höggleikur er leikinn í hverjum flokki og hljóta 1. - 3. sæti verðlaun frá Titleist. Veitt eru verðlaun fyrir flesta punkta hjá stúlkum og drengjum.

Vippkeppni er eftir að hring lýkur og verðlaun fyrir hvern aldursflokk.

Skráning fer fram á golf.is og eru þjálfarar og unglinganefnd meira en tilbúin  til að hjálpa til við skráningu.

Grillveisla fyrir keppendur og foreldra eftir hringinn.

„Golf er fyrir alla - bara gaman!,“ segir í tilkynningunni. „Við hvetjum alla til þess að mæta og njóta golfsumarsins með okkur. Unglinganefnd GSS.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir