Parmaskinkusalat og grillaðir þorskhnakkar

Parmaskinkusalat.
Parmaskinkusalat.

„Uppskriftirnar eru hugdettur og samtíningur úr ísskápnum eftir matarlöngun hverju sinni og eru gerðar eftir tilfinningu og smekk, oftast erum við frekar kærulaus í eldhúsinu og sullum bara einhverju saman sem okkur finnst gott og langar í, það þarf ekki alltaf uppskriftir. Þær tilraunir hafa oftar en ekki tekist og þessar hafa staðið upp úr,“ segja Arnrún Bára Finnsdóttir og Kristján Ásgeirsson Blöndal frá Blönduósi sem voru matgæðingar vikunnar í 10. tölublaði Feykis árið 2015.

„En það er auðvitað hægt að skipta út hráefnum í þeim eftir smekk, eins og í forréttinum og eftirréttinum, en við reyndum nú að setja þetta upp í einhvers konar uppskriftir og vonandi eiga einhverjir eftir að njóta vel,“ segja þau ennfremur. 

Forréttur
Parmaskinkusalat
 

Ristað brauð á pönnu:
Ólívuolíu er penslað á brauðið og það er steikt á pönnu. Kryddað með salti og pipar. Skorið í strimla eða teninga.
Brauðinu er raðað fallega á disk og eftirfarandi sett ofan á: 

Klettasalat
Parmaskinka
Salatfræ
Granatepli
Toppað og skreytt með grófu salti, fetosti og fetaostolíu og balsamikediki.

 Aðalréttur
Grillaðir þorskhnakkar 

2 stór hnakkastykki, fyrir 2-4.
Þorskhnakkarnir eru marineraðir í eftirfarandi marineringu:
1 dl af ólívuolíu
Börkur af 1 lime, raspaður útí olíuna
2-3 hvítlauksgeirar
dass af salti og pipar
dass af ítalskri hvítlauksblöndu 
Þægilegast er að skella þessu öllu í stóran heimilisplastpoka og leyfa þessu að taka sig í 2-3 tíma.

Aðferð:
Hnakkarnir eru svo vafðir í annað hvort beikon eða parmaskinku, persónulega finnst okkur parmaskinkan betri, og þeir grillaðir eftir smekk. Best er að hafa þá í álbakka því þeir eiga það til að losna í sundur og safinn úr þeim er mikill.
Meðlæti sem gott er að hafa með er köld piparsósa, ferskt salat, sætar kartöflur í ofni og snittubrauð. 

Eftirréttur
Kanil-karamellu góðgæti 

Lu kanilkex mulið í skál og litlir bitar af franskri súkkulaðiköku settir í botninn. Þeyttur rjómi og ís eru sett ofan á. Toppað með berjum/ávöxt eftir smekk og loks bræddum Góu kúlum. 

Eftirréttur 2
Frönsk súkkulaðikaka 

2 dl sykur
200 g smjör
200 g suðusúkkulaði
1 dl hveiti
4 stk egg 

Aðferð:
Þeytið eggin og sykurinn vel saman. Bræðið smjörið og súkkulaðið saman við vægan hita í potti. Blandið hveitinu saman við eggin og sykurinn. Bætið bráðnu súkkulaðinu og smjörinu að lokum varlega út í deigið. Bakið í vel smurðu tertuformi (ath. ekki lausbotna) við 170°C í 30 mínútur.

Krem á kökuna:
Karamellu Pipp frá Nóa Síríus og smá rjómi, þar til Pippið hefur bráðnað.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir