Þann 20. apríl 2016 var gefið út veglegt Feykisblað í tilefni af því að 35 ár eru liðin síðan fyrsti Feykirinn kom út. Í blaðinu er að finna viðtöl við fyrrum ritstjóra, sagan rifjuð upp með stofnendum auk þess sem viðburðir í Sæluviku fá athygli. Feykir þakkar þeim fjölmörgu fyrirtækjum og stofnunum sem styrktu útgáfu blaðsins í tilefni af afmælinu.