rabb-a-babb 36: Auddi Blö

Nafn: Auðunn Blöndal.
Árgangur: 1980.
Fjölskylduhagir: Á föstu.
Starf / nám: Dagskrágerðarmaður.
Bifreið: Reunolt Megane.
Hestöfl: 113 held ég og liggur eins og kjötbolla í beygjum!
Hvað er í deiglunni: Typpatal...

Hvernig hefurðu það? 
Það væri verra ef að það væri betra.
Hvernig nemandi varstu? 
Hávær latur og leiðinlegur...en skánaði með árunum.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? 
Hvað ég var upptekinn að telja pening... missti af nokkrum gestum í veisluni.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? 
Atvinnumaður í fótbolta, og það hefði tekist ef ekki væri fyrir alla þessa aðkomumenn í boltanum á sínum tíma!! Takk Ómar Bragi...
Hvað hræðistu mest? 
Að e-ð hendi fjölskyldu mína.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir (eða besta)? 
Thriller og á við bæði.
Hvaða lag ertu líklegastur til að syngja í Kareókí? 
With Arms Wide Open með Creed.
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)?
Strákunum og reyni að horfa alltaf á King Of Queens.
Besta bíómyndin? 
Fight Club og Cable Guy.
Bruce Willis eða George Clooney / Angelina Jolie eða Gwyneth Paltrow?
Clooney og Paltrow...Jolie er bölvaður hjónadjöfull!
Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem ekki er skrifað á tossamiðann?
Snakk og gos.
Hvað er í morgunmatinn? 
Cheerios og brauð.
Uppáhalds málsháttur? 
Pizza og Humar.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? 
Cartman.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? 
Er snillingur í að sjóða pulsur og ristabrauð.
Hver er uppáhalds bókin þín? 
Heavier then heaven...ævisaga Kurts Cobain.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu...
?beint í Skagafjörðinn...eða Hawai ;)
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? 
Hvað ég er stjórnsamur og matvandur.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? 
Níska og óheiðarleiki.
Enski boltinn - hvaða lið og af hverju? 
Man.Utd því annað er viðbjóður!!!!
Hvaða íþróttamanni / dómara hefurðu mestar mætur á? 
Eric Cantona og Pálma Sighvats sem á skilið styttu fyrir utan íþróttahúsið!
Heim í Búðardal eða Diskó Friskó?
Úff, geri ekki upp á milli kúks og skíts...
Hver var mikilvægasta persóna 20. aldarinnar að þínu mati? 
Móðir mín.
Ef þú ættir að dvelja aleinn á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? 
Pétur, Sveppa og dass af Bombay...
Hvað er best í heimi? 
Ísland.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir