Rabb-a-babb 83: Elfa Hrönn

Nafn: Elfa Hrönn Friðriksdóttir.
Árgangur: 1978.
Fjölskylduhagir: Gift Árna Birgissyni og á með honum 2 syni, Birgi Þór grunnskólanema og Kolbein Tuma leikskólanema. Fyrir átti árni soninn Hring sem er menntaskólanemi.
Búseta: Búsett í þeim góða bæ, Hafnarfirði, en verð alltaf Skagfirðingur í hjarta mínu.
Hverra manna ertu: Er dóttir Friðriks Antonssonar og Guðrúnar Þórðardóttur á Höfða, Höfðaströnd.
Starf / nám: Grunnskólakennari af lífi og sál eins og svo margir í minni fjölskyldu...
Bifreið: Hef nú aldrei verið skráð fyrir slíku tæki en ek um á Toyota Land Cruiser.
Hestöfl: Já einmitt – er það eitthvað ofan á brauð.
Hvað er í deiglunni: Barnaafmæli, vetrarfrí og margt annað skemmtilegt.

Hvernig hefurðu það? 
Kvarta ekki.
Hvernig nemandi varstu? 
Þarft að spyrja Kobba eða Fríðu Eyjólfs að því.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? 
Fyrir utan fermingarfötin og greiðsluna er eftirminnilegast að ég gleymdi ritningarorðunum mínum og bullaði bara eitthvað og sagði svo bara amen í lokin.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? 
Hjúkrunarkona, alveg klárt þangað til systir mín sagði að ég myndi aldrei geta unnið vaktavinnu þar sem ég er svo kvöldsvæf.
Hvað hræðistu mest? 
Þetta týpíska, mýs og köngulær.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir (eða besta)? Fyrsta platan sem ég keypti mér sjálf innihélt lögin úr kvikmyndinni Pretty Woman.
Hvaða lag er líklegast að þú tækir í Karóki? 
Púff - ekki viss en kannski "I Will Survive" en það væri bara á góðum degi.
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? Landanum, það eru sko almennilegir þættir. Svo eru heimildamyndirnar á mánudagskvöldum á RÚV ansi góðar.
Besta bíómyndin?  
Svo margar, sá nýlega "The Boy in the Striped Pyjamas" og hún hreyfði við mér.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? 
Að stjórna enda hússtjórnarskólagengin konan.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu?  Er að sögn bóndans hamfarakokkur en bý til mjög gott nesti þegar fara á í lautartúr.
Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem ekki er skrifað á tossamiðann? Allskyns kex sem fellur í misjafnan jarðveg en klárast samt alltaf á einhvern dularfullan hátt.
Hvað er í morgunmatinn? 
AB-mjólk með eplum og múslí en í tímaþröng kaffibolli í vinnunni.
Uppáhalds málsháttur?
 Aldrei skal gráta gengna stund.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? 
Gló magnaða.
Hver er uppáhalds bókin þín?  
Dalalíf eftir Guðrúnu frá Lundi. Skyldulesning í fjölskyldunni.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... til Ítalíu. Mig langar að fara þangað með mínum heittelskaða.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? 
Frestunaráráttan sem eykst með hverju árinu.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? 
Þegar fólk lofar einhverju en stendur ekki við það.
Enski boltinn - hvaða lið og af hverju? 
Hef enga skoðun á þessum enska bolta - uppáhalds knattspyrnulið mitt er og verður alltaf Neisti Hofsósi.
Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? 
Syni mínum sem æfir frjálsar íþróttir af miklum móð með FH.
Heim í Búðardal eða Diskó Friskó? 
Heim í Búðardal klárlega, ég er svo sveitó!
Ef þú ættir að dvelja alein/n á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér?  Spliff, donk og gengju. Maður kemst örugglega langt með það í farteskinu.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Með allt á hreinu?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir