Opin æfing hjá kammerkórnum

Skagfirski kammerkórinn býður á opna æfingu í Miðgarði í dag miðvikudaginn 25. apríl kl. 18.00. Kórinn hefur verið að æfa Magnificat eftir John Rutter og mun kynna verkið og höfund þess fyrir áheyrendum.

Á Facebook-síðu kórsins kemur fram að Helga Rós Indriðadóttir sé stjórnandi og Thomas Higgerson leikur undir á píanó. Verkið verður flutt í heild sinni á þrennum tónleikum í október ásamt hljómsveit og tveimur öðrum kórum og er hluti af verkefninu „Í takt við tímann“ sem fékk styrk úr Fullveldissjóði. Af því tilefni býðst áhugasömum nú að kynnast verkinu og höfundi og heyra flutning kórsins við píanó undirleik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir