Saga Natans og Skáld-Rósu

Nú síðsumars var mál þeirra Agnesar og Friðriks og aftaka þeirra á Þrístöpum í Vatnsdal fyrir tæpum 200 árum nokkuð í umræðunni þegar Lögfræðingafélag Íslands ákvað að „endurupptaka" málið á hendur þeim þar sem þeim var gefið að sök að hafa drepið og brennt inni þá Natan Ketilsson bónda á Illugastöðum og Pétur Jónsson vinnumann. Var það gert með þeim hætti að réttarhöldin yfir þeim voru sett á svið í Félagsheimilinu á Hvammstanga eftir vettvangsferð um söguslóðir.  Bókaútgáfan Sæmundur hefur nú endurútgefið bók Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-Núpi um Natan Ketilsson og Skáld-Rósu sem var ástkona Natans um tíma. Í fréttatilkynningu frá útgáfunni segir:

Sagan er hin yngsta af þeim fjórum sögum sem alþýðufræðimenn 19. aldar rituðu um ævi og aldurtila Natans Ketilssonar á Illugastöðum. Hún er heilstæðust þessara sagna og rituð af miklu listfengi. Hér er dregin upp lifandi mynd af mannlífi í Húnaþingi á 19. öld.  

Höfundur rekur aðdraganda morðbrennunnar á Illugastöðum aðfaranótt 14. mars 1928. Frásögnina byggir höfundur á allt að aldargömlum munnmælum. Er að vonum nokkur munur á þeim sögnum og því sem fram kemur í réttarskjölum eins og Eyrún Ingadóttir sagnfræðingur rekur í eftirmála bókarinnar.  

Aftaka Agnesar og Friðriks á Þrístöpum í Vatnsdalshólum sem sagt er ítarlega frá í bókinni var hin síðasta á Íslandi. Bændur úr gervöllu Húnaþingi voru skikkaðir til að vera þar viðstaddir og allar götur síðan hefur þessi athöfn og sagan þar bakvið verið þjóðinni hugleikin. 

Í sögulok rekur höfundur afdrif þeirra sem eftir lifa og þá einkanlega sögu Skáld-Rósu frá Vatnsenda sem var um tíma ástkona Natans Ketilssonar.

Bókin kom fyrst út hjá Bókaverslun Sigurðar Kristjánssonar árið 1912 og er nú endurútgefin í upprunalegu formi í harðspjalda bók. Eftirmála skrifar Eyrún Ingadóttir sagnfræðingur.

Saga Natans Ketilssonar og Skáld-Rósu er 188 síðna harðspjalda bók með lausblaðakápu.
ISBN 978-9935-465-95-5. Leiðbeinandi verð kr. 3.990,-

/Fréttatilkynning

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir